Félag eldri borgara í Kópavogi

Ef þú gerist félagi í FEBK færðu:
– Afslátt hjá hundruðum verslana og þjónustufyrirtækja
– Hagstæð tilboð um ferðalög, innanlands og utan á vegum félagsins
– Ókeypis blaðið Listin að lifa, félagsrit Landssambands eldri borgara

Þjónustubókin
Hægt er að nýta Þjónustubókina til að fá góðan afslátt hjá fjölda fyrirtækja. Í henni er listi yfir hundruðir verslana og þjónustufyrirtækja sem veita félagsmönnum FEBK afslátt.

Félagsgjald FEBK er 4.000 kr. á mann á ári.

Skráðu þig í Félag eldri borgara í Kópavogi ef þú ert 60+.
Gefa þarf upp nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang ef til er.

Þú getur skráð þig í FEBK með því að koma á skrifstofuna að Gullsmára 9 eða hringja í síma 554 1226 á skrifstofutíma, sjá forsíðu. Einnig er hægt að senda tölvupóst með ofangreindum persónuupplýsingum á netfangið: febk@febk.is
Auðveldast er að skrá helstu upplýsingar inn hér að neðan og senda til okkar beint af vefnum.

Þegar umsókn þín er móttekin af FEBK þá sendir bankinn greiðsluseðil til þín eða í heimabankann ef þú hefur ekki þegar greitt á staðnum. Þegar þú hefur greitt félagsgjaldið þá færðu sent FEBK félagsskírteinið og ert þar með skráð/ur í félagaskrá FEBK.

Þú getur verið viss um að félagsskírteinið er fljótt að borga upp árgjaldið!