Saga FEBKFélag eldri borgara í Kópavogi var
stofnað 26. nóvember 1988, en áður hafði
farið fram nokkur undirbúningur. Fimmtudaginn
3. nóvember 1988 komu 17 Kópavogsbúar
saman í fundarstofu félagsmálastofnunar Kópavogs að Digranesvegi 12 til að
undirbúa stofnfundinn. Þessir 17 Kópavogsbúar áttu það allir sameiginlegt að
vera komnir á eftirlaunaaldur. Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir, fulltrúi í málefnum
aldraðra
hjá Kópavogsbæ, stýrði þessum
fundi, en tilgangur hans var að undirbúa stofnun
Félags eldri borgara í Kópavogi. Allir fundarmenn
voru sammála um að stofna
félagið og voru Andrés Kristjánsson,
Guðrún Þór, Ólafur Jónsson,
Soffía
Jóhannesdóttir og Tryggvi Benediksson valin úr
hópi fundarmanna til að vinna að
undirbúningi stofnfundar. Þessi hópur vann hratt og
vel og var stofnfundur
boðaður laugardaginn 26.nóvember 1988 kl. 14:00 í
Félagsheimili Kópavogs. Fundurinn hófst með ræðu,
sem Guðrún Þór flutti, og tilnefndi hún Kristján
Guðmundsson, bæjarstjóra sem fundarstjóra og
Ágústu Björnsdóttir sem fundarritara.
Á þessum stofnfundi voru mættir um 140 manns en 114
gerðust stofnfélagar. Fyrsta
stjórn hins nýstofnaða félags var þannig
skipuð: Ólafur
Jónsson formaður, Guðrún Þór
varaformaður, Ágústa Böðvarsdóttir
ritari, Árni
Örnólfsson gjaldkeri og meðstjórnendur þau
Andrés Kristjánsson, Soffía
Jóhannsdóttir og Tryggvi Benediktsson. Á fyrsta stjórnarfundi var samþykkt að félagið gerðist
stofnaðili að Hinn 25
febrúar 1989 var haldinn aðalfundur, sem jafnframt
var framhaldsstofnfundur og var sama stjórn þar
endurkjörin. Á þessum fundi
voru auk venjulegra aðalfundarstarfa umræður um
Bílatryggingamál, viðhald húsa
og lóða, húsnæðismál aldraðra
o.fl. og sést á þessu að félagið kom
víða við
strax í upphafi. Milli stofnfundar og fyrsta aðalfundar voru
haldnir fjórir
stjórnarfundir og einn félagsfundur og voru
tryggingamál til umræðu á þeim
fundi. Árgjald til félagsins var ákveðið
kr. 1500. Á
stjórnarfund 11. mars 1989 mættu Björn
Markússon,
umsjónarmaður Prestshússins og Sigurbjörg
Sigurðardóttir öldrunarfulltúi til að
ræða um afnot félagsins af húsinu, en
það var notað af íbúum Vogatunguhverfis
til spilamennsku á mánudögum og fimmtudögum.
Til þess að rekast ekki á það
starf sem fyrir var í húsinu var samið um að
félagið fengi þriðjudaga,
föstudaga og laugardaga milli kl. 3 og 5 fyrir
skrifstofutíma. Næstu
misseri voru stjórnarfundir haldnir í
Prestshúsinu,
en aðrir fundir í Félagsheimili Kópavogs
eða Lyonshúsinu Auðbrekku 25. Á þessu
ári kom fyrsta fréttabréf félagsins
út og var það ein síða í
Fréttabréfi um
málefni aldraðra, en Erla Friðriksdóttir,
öldrunarfulltrúi var ritstjóri þess.
Byggingamál fyrir aldraða voru mikið á
dagskrá hjá félaginu á fyrstu árum
þess
og var m.a. kosin byggingarnefnd, sem átti að sækja um
lóðir og athuga með lán
o.fl. án þess þó að félagið
yrði byggingaraðili, heldur átti að fá
verktaka til
að sjá um verkið og selja síðan
íbúðirnar, en félagið átti að
vera einskonar
fyrirgreiðslu aðili. Strax á þessu fyrsta
starfsári voru kosnar skemmtinefnd og
ferðanefnd og tóku þær strax til starfa og hafa
slíkar nefndir verið vel virkar
allar götur síðan. Á
fyrstu árunum var nokkuð rætt um
húsnæðismál félagsins og
á aðalfundi 1991 var samþykkt að stofna
húsbyggingarsjóð og var stjórninni
falið að gera tillögur um samþykktir fyrir
sjóðinn og fara með stjórn hans þar
til stjórn sjóðsins yrði kosin samkvæmt
reglum. Þá var samþykkt að leggja
sjóðnum til 500 þúsund krónur úr
félagssjóði og eftirleiðis helming
félagsgjalda, og var félagsgjald þá
hækkað í kr.1700. Í maí var kosin
stjórn
húsbyggingarsjóðs. Nokkrum dögum fyrir
aðalfund 1992 kom bréf frá
félagsmálastjóra
þar sem óskað var eftir að félagið
kæmi með hugmyndir um starfsemi í Fannborg
8, þar sem að koma átti upp aðstöðu
fyrir félagsstarf aldraðra og óskað eftir að félagið skipaði fulltrúa í
starfshóp um málið. Á félagsfundi, sem haldinn var 11, júní í Auðbrekku 25 var
gerð svohljóðandi samþykkt: "Fundur
í félagi eldri borgara í
Kópavogi, haldinn 11.júní 1992 að
Auðbrekku 25, lýsir ánægju sinni með
það
starf sem unnið hefur verið við undirbúning að
skipulagi og rekstri á
þjónustumiðstöð aldraðra að Fannborg
8 og fagnar því að framkvæmdir verða
nú
hafnar við að innrétta húsnæðið.
Fundurinn lýsir yfir vilja
sínum til samstarfs við Félagsmálastofnun
Kópavogs um stjórn
þjónustumiðstöðvarinnar og felur
stjórn félagsins að vinna
áfram að málinu og tilnefna fulltrúa í
samstarfshóp um rekstur þjónustukjarnans
ef samningar takast." Áður en samþykkt
þessi var gerð voru nokkrar
umræður um málið og kom fram sá vilji
að í þessu húsnæði yrði fullkomin
eldhúsaðstaða og matarþjónusta. Á
aðalfundi 1993 voru gerðar breytingar á
samþykktum félagsins og þá kosin
stjórn samkvæmt því
þannig að helmingur var kosinn til tveggja
ára en hinn helmingurinn til eins árs og eftirleiðis
yrði alltaf kosið um
helming stjórnaramanna og þá til tveggja ára
og á þessum fundi var formaður
kosinn í fyrsta sinn til tveggja ára og var það
Jóhanna Arnórsdóttir sem þá var
kosin en fram til þess hafði Ólafur Jónsson
verið formaður. Þá var á þessum
sama fundi í fyrsta sinn, kosið tíu manna
trúnaðarmannaráð, samkvæmt. nýjum
lögum. Í marsmánuði 1993 er mikið að gerast hjá félaginu, en í
þeim mánuði voru haldnir fjórir stjórnarfundir. Á
stjórnarfundi 11.mars leggur húsbygginganefnd fram
tillögu um að kaupa eða leigja 260 fermetra
húsnæði að Hamraborg 1, fyrstu hæð.
Húsnæðið var óinnréttað.
Ákveðið að skoða þetta betur. Á
stjórnarfundi 18. mars
eru húsnæðismálin til umræðu og voru
lagðar fram teikningar um innréttingar
hússins, en frekari ákvörðun var frestað og
á stjórnarfundi 25. mars var svo
endanlega ákveðið að hafna tilboðinu í
Hamraborg 1. Í
stjórnarfundargerð frá 18. mars er eftirfarandi
skráð:
Formaður las upp bréf frá samstarfsnefnd um starfsemi
þjónustumiðstöðvar
aldraðra, sem ætlað er að taki til starfa í
maí nk. á neðstu hæð í Fannborg 8.
FEBK á tvo fulltrúa í nefndinni þau
Ólaf Jónsson og Guðrúnu
Vigfúsdóttir. Í
bréfinu er því lýst yfir að FEBK
fái aðstöðu í
félagsmiðstöðinni fyrir þá
starfsemi sína, sem henta þykir og rými er fyrir.
Tekið er fram að ekki sé
reiknað með endurgreiðslu fyrir
húsnæðið en samstarf við stjórnendur
þjónustumiðstöðvarinnar sé
nauðsynlegt. Félaginu er ætlað að skipuleggja
ferðir
utanlands og innan fyrir þá sem sækja
þjónustumiðstöðina. Vænst er
þátttöku
félagsins í dagskrá og umsjón með opnu
húsi og öðrum þáttum í starfsemi
þjónustumiðstöðvarinnar. Öldrunarfulltrúi
mætti á stjórnarfund 27. apríl og
skýrði
frá því að ætlunin væri að FEBK
fengi inni í hinni nýju félagsmiðstöð
með
starfsemi klúbba og skemmtanahald eftir því sem
rými og
aðstaða leyfði. Þá var spurt um möguleika
á skrifstofuaðstöðu fyrir FEBK í Fannborg 8
og taldi öldrunarfulltrúi það ekki
útilokað. Hinn 16. maí 1993 var haldinn
félagsfundur í nýju félagsheimili,
Gjábakka, sem opnað var 11.maí, og síðan
þá hafa flestir félagsfundir og
samkomur félagsins farið þar fram eða í
félagsheimilinu Gullsmára eftir að það
var tekið í notkun, en fram að þeim tíma
voru fundir og samkomur ýmist í
félagsheimili Kópavogs eða að Auðbrekku 25. Í
júlímánuði eða nánar tiltekið
27. júlí 1993 mættu á
stjórnarfund, þau Ólafur Jónsson fyrrverandi
formaður og Guðrún Vigfúsdóttir og
gáfu skýrslu um fund sem þau sátu með
Aðalbjörgu Lúthersdóttur
öldrunarfulltrúa
og Sigurbjörgu Björgvinsdóttur forstjóra
félagsheimilisins í Gjábakka. Þar
hafði verið rætt um að FEBK gengist fyrir 4 til 5
stuttum ferðum og töldu þau
heppilegast að allar slíkar ferðir farnar frá
Gjábakka væru á einni hendi. Á
stjórnarfundi 2. ágúst kom fram hjá
skemmtinefnd að allt sé óljóst um starfsemi
félagsins í Gjábakka þar sem ekki sé
á hreinu hvort félagið eigi að greiða
húsaleigu
og hver hún yrði. Fulltrúi í
samstarfsnefndinni upplýsti að hann hefði aldrei
heyrt talað um leigu. Þann
9. september var haldinn stjórnarfundur, þar sem
Aðalbjörg Lúthersdóttir,
öldrunarfulltrúi mætti og ræddi um samstarf
í
félagsheimilinu Gjábakka og taldi það hafa
verið með ágætum. Á þessum sama
stjórnarfundi kom upp að nokkrir fundarmenn voru ekki
ánægðir með skrifstofuaðstöðuna
í Prestshúsinu því fáir kæmu
þar þegar opið væri, fólk legði fremur
leið sína í
Gjábakka og töldu nauðsynlegt að fá
skrifstofuaðstöðu í Gjábakka til að
félagið
einangraðist ekki frá starfinu þar. 15.september er
rætt um eldhúsið í Prestshúsinu
og kom fram ósk frá Sigurbjörgu
Björgvinsdóttur forstöðumanni Gjábakka
að
eldhúsið yrði rýmt svo að það
mætti nýtast fyrir tréskurð á vegum
félagsstarfs
aldraðra. Samþykkt var að vísa því
máli til öldrunarfulltrúans. Það er svo
á
stjórnarfundi hinn 19. október þar sem rætt
var um skrifstofuaðstöðu fyrir FEBK
í Gjábakka að öldrunarfulltrúi
upplýsir að samið hefði verið um
aðstöðu fyrir
FEBK í afgreiðslu herbergi hússins. Það var á þessu hausti 1993 sem undirbúningur að byggingu
íbúða fyrir aldraða við Gullsmára hófst og 31.október komu félagsmálastjóri,
skipulagstjóri og væntanlegur verktaki á fund í félaginu og kynntu þar
fyrirhugaðar framkvæmdir og samþykkti þá fundurinn eftirfarandi tillögu: “
Fundurinn felur stjórn félagsins að fylgjast með
undirbúningi að byggingu íbúða
fyrir aldraða við Gullsmára í Kópavogsdal
og tilnefna fulltrúa í undirbúningsnefnd ef þess verður óskað”.
10.nóvember var haldinn stjórnarfundur þar sem kosinn var fulltrúi félagsins
til samstarfs við bæjarráð Kópavogs að skipulagningu framkvæmda við Gullsmára. Í
bréfi sem bæjarráð sendi FEBK segir að
starfshópi þessum sé ætlað að ganga
til samninga við Suðurhlíð hf. um kaup á
íbúðum fyrir aldraða og byggingu
þjónustumiðstöðvar við Gullsmára. Þennan
vetur og sumarið eftir eru þessi
húsnæðismál oft á
dagskrá og kom Öldrunarfulltrúi á
stjórnarfund 5. apríl 1994 til umræðna um
ýmiss öldrunarmál, einkum þó
tilhögun og form nýrra bygginga sem
bæjarfélagið
stendur fyrir við Gullsmára í Kópavogi.
Sagði öldrunarfulltrúi að þess væri
vænst af FEBK að láta í ljósi
óskir og tillögur varðandi þessar
framkvæmdir
t.d. í hvaða hlutfalli væru óskir um:
Blokkaríbúðir, smáhýsi,
þjónustuíbúðir,
verndaðar þjónustuíbúðir,
sambýli o.s.frv. Þann 20. september 1994 kom
öldrunarfulltrúi á stjórnarfund og
óskaði eftir skipun fulltrúa í nefnd sem
yrði á vegum félagsmálstofnunar, til að
skipuleggja þjónustustarf í fyrirhugaðri
þjónustumiðstöð í Gullsmára. Það er svo á stjórnarfundi 21.nóvember
1995 að félagsmálastjóri tilkynnir
að bæjarstjórn ætli ekki að kosta meira
viðhald á prestshúsinu og þar með var
ljóst að félagið yrði að leita að
öðru skrifstofuhúsnæði og einnig sagði
félagsmálastjóri að breyta ætti annari
hæð í félagsheimili Kópavogs, en
þar
hafði félagið haft aðstöðu fyrir
félagsvist og dans. Á þessum fundi sagðist
formaður hafa leitað eftir húsnæði til kaups
og lagði fram tilboð frá Viðari
hf. um húsnæði í Gullsmára 9 og var
samþykkt að skoða það betur. Einnig var
rætt um að finna húsnæði fyrir
félagsvist og dans og var bent á húsnæði
Sjálfstæðisflokksin
að Hamraborg 1, sem mun vera fáanlegt, en engin
samþykkt var gerð um það. Þann
8. desember kom stjórnin saman að Auðbrekku 2,
húsi
sem bærinn átti og bauð félaginu
skristofuaðstöðu þar til bráðabirgða,
en rýma
þurfti Prestshúsið sem fyrst. Samþykkt var
að flytja skrifstofuna í Auðbrekku 2
til bráðabirgða. Í janúar 1996 voru
haldnir nokkrir fundir þar sem húsakaup
voru til umræðu, en 3. janúar lagði formaður
fram formlegt tilboð frá Viðari
hf. á 46 fermetra plássi á fyrstu hæð
í Gullsmára 9. Samþykkt
var að skoða húsnæðið og leita
samninga og það var síðan á sameiginlegum
fundi stjórnar, trúnaðarmannaráðs og
stjórnar húsnæðissjóðs að
stjórn félagsins og stjórn
húsnæðissjóðs var veitt
heimild til að ganga frá samningi um húsakaupin.
Það er svo 10. júní 1996 að haldinn
er stjórnarfundur í eigin húsnæði og var
félagið fyrsti aðilinn sem flutti í
Gullsmára 9. Um þetta leyti hófust
umræður um væntanlega
þjónustumiðstöð í
Gullsmára, sem áætlað var að taka í
notkun á árinu 1997. Á stjórnarfundi
16.júní 1997 er bókaður vilji
stjórnarinnar þess efnis að félagið taki
að sér rekstur félagsmiðstöðvarinnar
í
Gullsmára. Í september eru drög
bæjarstjórnar að samningi um reksturinn til
umræðu og samþykkt að halda
samningaumræðum áfram. Á félagsfundi sem
haldinn var
4. október 1997 urðu miklar umræður um
samningsdrögin, en samkvæmt þeim átti
félagið að taka að sér reksturinn. Ekki
voru allir á sama máli og rætt um
óðarlagsbreytingar. Fram kom dagskrártillaga
um að fresta umræðum og var hún felld með
jöfnum atkvæðum 37 gegn 37. Umræðum
var síðan heldið áfram og orðalagsbreytingar
í samningsdrögum samþykktar og
samþykkt að halda samninga umræðum áfram.
Einhver misskilningur virðist hafa
orðið og félagsmálastjóri fengið
rangar upplýsingar því hann skrifaði
bréf til
stjórnar félagsins þess efnis að þar sem
samningsdrögin hefðu verið felld með
jöfnum atkvæðum á fundinum 37 gegn 37 yrði
ekki af frekari samningum og
reksturinn yrði eins og í Gjábakka. Í
nóvember 1997 barst ósk frá
félagsmálastjóra um tilnefningu um fulltrúa
í nefnd til að undirbúa rekstur
félagsmiðstöðvarinnar í Gullsmára sem
opna skyldi 5.desember
og var orðið við því. Svo virðist
eftir fundargerðum að eitthvað hafi orðið
stirðara í samskiptum milli félagsins
og félagsmálastofnunar eftir að Gullsmári var
opnaður a.m.k. er lítið bókað þar
um, en það er von mín að það sé
liðin tíð því stjórn FEBK hefir
átt ánægjulega
og gagnlega fundi með félagsmálastjóra og
forstöðumanni félagsheimilanna. Á
aðalfundi 1998 lætur Jóhanna
Arnórsdóttir af formennsku í
félaginu og Leópold Jóhannesson var kjörinn
formaður félagsins. Á milli
aðalfunda 1998 og 1999 eru haldnir nokkrir stjórnarfundir og
þar af einn með
trúnaðarmannaráði og var þar rætt um
daglega starfsemi félagsins þar sem
húsnæðismál voru í höfn. Á
aðalfundi 1999 er Leópold Jóhannesson
endurkjörinn
formaður en hann hafði verið mikið frá vegna
veikinda árið áður. Sennilega
vegna veikinda formanns eru ekki bókaðir nema
þrír stjórnarfundir og einn
almennur fundur milli aðaðalfunda 1999 og 2000, en á
aðalfundinum 2000
tilkynnir formaður, Leópold Jóhannesson að hann
geti ekki vegna heilsubrests
starfað lengur sem formaður og var þá Karl
Gústaf Ásgrímsson kjörinn formaður.
Á þessum aðalfundi árið 2000 eru gerðar
verulegar breytingar á samþykktum eða
lögum félagsins og er þá fellt út
að kjósa tíu manna
trúnaðarmannaráð og rökin
fyrir því að trúnaðarmannaráð
hefði ekki verið boðað til fundar í tvö
ár, en
samkvæmt bókun var síðast fundur ráðsins
haldinn í september 1998 og hafa fundir þess sennilega fallið niður vegna veikinda
formanns. Eins og
ég sagði hér áður þá var
Ólafur Jónsson fyrsti
formaður félagsins og var hann formaður í
rúm fjögur ár, en hann hætti þegar
hann var kosinn formaður Ferðanefnd
hefur allar götur frá stofnun félagsins verið
vel virk og margir komið þar við sögu og má
þar t.d. nefna fyrrv., formann,
Leópold Jóhannesson, Boga Þóri
Guðjónsson, Þráinn Þorleifsson auk margra
annara. Ferðanefndin hefur staðið fyrir ferðum
bæði innan lands og utan, löngum
og stuttum á hverju ári. Hin síðari ár hefur
ferðanefndin aðeins verið með innanlandsferðir á eigin vegum, en verið í
samvinnu við ferðaskrifstofur með
utanlandsferðir. Þess
má geta að félagið hefur staðið að
gerð púttvalla og
hafa Bogi Þórir og Karl Helgason, fyrrverandi. ritari
verið þar í forystu ásamt
fleirum. Á þeim árum sem Jóhanna
Arnórsdóttir var formaður gekkst hún fyrir
því
að koma á sundleikfimi fyrir félagsmenn og aðra
aldraða og hefur hún leitt,
kennt og stýrt þessu allar götur síðan og
er enn að. Bridge-
deildir hafa verið starfandi í báðum
félagsheimilunum undanfarin ár og er spilað tvisvar
í viku á hvorum stað. Félagsvist
er spiluð í báðum félagsheimilunum undir
stjórn Jóhönnu Arnórsdóttur.
Bingó er
spilað í Gullsmára annan hvern föstudag og
í Gjábakka annan hvern fimmtudag. Leshópurinn í Gullsmára undir
stjórn Stefáns Friðbjarnarsonar kemur saman
fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði yfir vetrartímann og kynna þar ýmsir
rithöfundar verk sín. Skvetturnar
í
Gullsmára eru búnar að halda Skvettuböll
í Gullsmára í nokkur ár og haf þau
verið mjög vinsæl. Gleðigjafarnir í
Gullsmára taka lagið undir stjórn Guðmundar Magnússonar annan hvern föstudag
og er
þar oft fjölmennt. Opið hús er
haldið nokkrum sinnum yfir veturinn og að
sjálfsögðu félagsfundir.
Fréttabréf
félagsins hefir komið út nokkrum sinnum á
ári frá fyrstu tíð, fyrst sem síða
í
blaði, sem félagsmálastofnun gaf út,
síðan í mörg ár sem
sjálfstætt blað, sem
sent var félagsmönnum, en nú síðustu
árin hefur það verið ein síða í
Kópavogspóstinum
og var sú breyting gerð til að ná til allra eldri
borgara í Kópavogi og hefur
það gefist nokkuð vel. Heiðursfélagar
eru fjórir, Ólafur Jónsson, fyrrverandi
formaður var gerður að heiðursfélaga á
tíu ára afmæli félagsins og hjónin
Jóhanna Arnórsdóttir fyrrv.,formaður,
maður hennar Hjörtur Kristinn Hjartarson,
fyrrverandi formaður skemmtinefndar
og Bogi Þórir Guðjónsson voru
gerð að heiðursfélögum fyrir mikil og
góð störf í þágu félagsins. Að lokum var Karl Gústaf Ásgrímsson
fyrrverandi formaður félagsins gerður að heiðursfélaga er hann lét af störfum. Það má geta þess til gamans að árgjald til félagsins var í
fyrstu 1500 krónur, en er núna kr. 2.100 + 200 kr. fyrir styrktarsjóðinn
Hjálparhellu. Stofnfélagar voru 114 en í dag eru skráðir yfir 1200
félagsmenn.Yfir 100 manns eru gjaldfrjálsir, því samþykkt var fyrir þrem
árum að þeir sem eru 85 ára og eldri
greiða ekki félagsgjald, en njóta fullra
réttinda. Eins og þið sjáið af
því sem
hér hefur verið sagt , hefur verið mikið
gert og margir komið að starfinu, þó
ekki sé nærri allt upp talið. Til að
efla og auka starf félagsins þurfum við að fá sem flesta í lið með okkur. Í mars 2008 gerði stjórn FEBK mikið átak til að vekja
athygli Kópavogsbúa á starfi félagsins.
Send voru út 3080 bréf og eru þau þegar farin að skila árangri. Margir nýir félagar hafa skráð sig í félagið
og fögnum við hverjum þeim sem bætist við.
Til þess að efla og auka starf félagsins þurfum við að fá fleiri til
starfa. Komið og takið þátt í því að efla og styrkja félagið okkar FEBK. Tekið saman af Karli Gústaf Ásgrímssyni fyrrverandi formanni FEBK., en hann andaðist 1. júlí 2007. Uppfært 15. apríl 2008 af núverandi formanni FEBK Kristjönu H. Guðmundsdóttur |